We’ve updated our Terms of Use to reflect our new entity name and address. You can review the changes here.
We’ve updated our Terms of Use. You can review the changes here.

R​ö​kr​é​tt framhald

by Grísalappalísa

/
  • Record/Vinyl + Digital Album

    First time on vinyl! Rökrétt framhald is cut on high quality black virgin vinyl. Printed on a custom folded carton-sleeve and comes in a silk-screened plastic jacket sleeve.

    Includes unlimited streaming of Rökrétt framhald via the free Bandcamp app, plus high-quality download in MP3, FLAC and more.
    ships out within 5 days

      $28 USD or more 

     

  • Streaming + Download

    Includes unlimited streaming via the free Bandcamp app, plus high-quality download in MP3, FLAC and more.
    Purchasable with gift card

      $10 USD  or more

     

  • Full Digital Discography

    Get all 7 Grísalappalísa releases available on Bandcamp and save 20%.

    Includes unlimited streaming via the free Bandcamp app, plus high-quality downloads of Týnda rásin, Bimbó, Sumar á Gríslandi, Syngur Stuðmenn, Rökrétt framhald, Syngur Megas, and Ali. , and , .

    Purchasable with gift card

      $30.38 USD or more (20% OFF)

     

1.
ég vil bara vera á par ég vil bara vera á pari Sátum á Næsta bar þóttumst vera par hann reykir svo mikið gras eins& mamma segir mér allt tvisvar ég skal vaska upp ef þú lætur renna í bað hann afvegaleiðist í smálán sund við birtíng hann hengir upp þvottinn sinn er það rignir & þegar hann er blindfullur kallar hann mig Vignir en ég heiti Baldur ég skal vaska upp ef þú lætur renna í bað
2.
Uppþornaðir draumar skrælna & taka fjörkippi eins& murtur í sólinni á Þingvöllum nályktin ógeðslegi fnykurinn læðist inn óðar fyllir vit þín eins& skata á þorláksmessu ég þarf að æla ég þarf að æla hvar er ruslatunnan hafa allir gleymt skáldinu að sunnan forðum dömurnar löðuðust að í stöflum auðfúsar vildu allar faðma skáldið bak við runna nú er öldin önnur af blaði í pixlaðan ramma argvítug ásýnd í meira lagi finnst ykkur ekki? allt á tjá & tundri hjólum, bláskjám með vígtennur eða í lausu lofti hvar get ég staðið hvar get ég staðið þegar víða eru stoðin fallin sem mest hékk á & það er dauði við hvert fótmál hans svar var pent allt má allt má falla vínstúkan sem þeir tróðu sér í tróðu sér í drekka sér í drekka sérrí sjálfur ekki hóti skárri stend hér hlaðinn korn hveiti ger & ég dreg létt andann drekk landann sef út & snúsa vandann hvað er svona spennandi handan er það blá víðáttan ég ætla að farma þessu gellu við skulum virkja þennan foss hillingar tala með módelrödd en raunin; feit, ljót, leiðinleg & södd er spurð kvaðst dreyma ógeðslega ljótt hún hrekkur upp við andfælur hverja nótt mitt líf fyrir þitt taktu það skjótt án þín getum aldrei sofið rótt taktu það sem þú vilt lífið er lottó taktu gnótt hendurnar & fæturna en plís plís ekki taka ástina frá mér taktu það sem þú vilt þetta er landið mitt & þitt & við skulum ekki deila því með neinum Íslands er lag Íslands er lag ég þarf að æla ég þarf að æla
3.
Tík 02:12
Hún telur í sig kaloríur vingast við góðar fitusýrur hún mun lifa að eilífu það hlýtur að vera ljóstillífun ég þrái þína ljósliðugu lokka eins& fransbrauð á Mokka við vorum ofursljó & þunn daginn eftir það hljóp hvolpur í mig og tík í hana ó drottinn ef hún verður mér ekki að bana ég myndi gera allt fyrir hana á meðan ég hnoða degið hugsa ég um ekki neitt nema hana allt fyrir hana
4.
ABC 02:16
Ertu ekki þreytt á að vera skilin út undan ertu ekki þreyttur á að vera peð viltuekkiverameðviltuekkiverameð ég tók tvær bara til að gá hvað myndi ske ég fór úr A í B yfir í C viltuekkiverameðviltuekkiverameð viltu ekki vera með viltu ekki vera með viltu ekki vera samferða mér spássera strætin reyna að hafa af vinum fé viltu ekki viltu ekki vera með vera alveg eins& ég & sjá það sem ég sé ekki vekja Arnór ekki vekja Arnór hann lagði allt að veði dó reis upp þunnur í blómabeði á móti löggustöðinni hann fór úr A í B yfir í C - ABC viltuekkiverameðviltuekkiverameð allt getur skeð
5.
Flýja 07:23
bæla? sæla! það þarf dælu til að dæla ranghugmyndunum upp úr höfðinu á mér bæla? sæla! bæla? sæla! það þarf mæli til að mæla hraðann á þér Svo mikil ást svo mikil sorg gemmér tré fyrir torg ég verð að flýja ég verð að flýja reykjavík hvernig sem fer hvernig sem fer verð ég á húki út á horni að bíða eftir þér sveitasælan er ljúf ljótum mönnum eins& mér flæktur um stöðvunarskyldu en enginn stoppar hér ég hef hálfan hug að leggjast í tjöru svo ég þoli gusuganginn við þetta flæðisker hvernig sem fer hvernig sem fer verð ég á húki út á horni að bíða eftir þér sveitasælan er ljúf ljótum mönnum eins& mér ég verð að flýja ég verð að flýja hærra hærra hátt hátt upp til skýja allt virðist smærra sefsjúka landkrílið í mýflugumynd heillin finnst þér ekki synd að vera komin útúr mynd þú getur aldrei framar hreiðrað um þig í minni dalalind hvernig sem fer hvernig sem fer verð ég á húki útá horni að bíða eftir þér sveitasælan er ljúf ljótum mönnum eins& mér
6.
Nóttin 01:37
Úti fellur snjórinn léttari en fiður inni freyðir seyðið vellur & hnellir skellum meðan ísskápurinn berst við kliður ég þéra kurteislega hávelborinheit væri yður sama? svo ég baða hana blótsyrðum af því bara bara til að komast framar bara til að komast fremst það er vont en það venst & á nóttinni leggst ég henni til náðar ég hef ekkert að gefa en hún tekur allt meira en ég á hlýjuna, snertinguna & fullnæginguna líka það er vont en það venst & það venst & það venst en það getur ekki enst
7.
Þurz 04:09
Þau vilja að ég hætti að ljúga þroskist & segi satt þau vilja að ég klári það sem ég byrjaði á & væri ekki næs að heyra í þér öðru hvoru án þess þig vanti eitthvað þau verða stundum reið en þau eru fljót að gleyma þau vilja bara ekki að ég falli í gröfina þeirra þau vilja þér vel sem betur fer ég er helgispjall þau vilja færa mér allt sem er best gull í græna skó meira en nóg en áður en þú ferð á túr í taumi um jafnaskarð eða að tína krækjuber mundu þá hvað þau sögðu þér strípnalaus zebrahestur hneggir & rauð rós hefur þyrna þau vilja þér vel sem betur fer & þau vita líka að prakkarastrik eru í lagi annað slagið þú veist það þýðir ekki að sitja heima í móki sannleikann finnur ekki í sófa mönsandi á popp' & kóki maður þú verður að spyrna í hættu að vorkenna sjálfum þér þú veist þú þráir félagskapinn þau vilja þér vel sem betur fer & þau vita líka að prakkarastrik eru í lagi annað slagið þau tala oní hvort annað & mér bara leiðist
8.
stökk snúðugt niður stigann rauk út mamma&pabbi halda að ég sé enn heima allir eru svo fljótir að gleyma láta ekki þar við sitja & segja að frægðarsól þín sé í rénum flóð fjara grótta akrafjall esjan etc. skokkarar í skærum litum hlaupa hjá í takt í stíl & ég leit hornauga um öxl þar sem olían lak þar sem þung rafmygluský tróna yfir borginni meðan akranes logar þægilega í fjarska himinnin er grár strætin eru auð (ekki sál) handan við hornið bíða neonljós af nýlendugötu út að gróttu á undir 5 framhjá pálsbæjarvör á 120 & ég leit í baksýnisspegilinn þar sem jarðýtan gekk á land þar sem gul&rauð steypujólatré risu upp þétt í eitís
9.
Melankólía 01:33
Enn að gera það sama & ég gerði í gær mér leiðist eftir þér ég held ég taki upp nýjan kæk orðinn langþreyttur af þessari erindaleysu ég held ég splæsí heimsreisu fyrir tvo ég hef verið óhamingjusamur svo lengi ég held ég sé til í hvaðeina ég reyni að draga í bros en það fer út um þúfur ég reyni að koma orðum í belg en belgurinn hnígur allt sem veltur eltir mig á röndum forðaðu þér eða fórnaðu höndum allt sem veltur eltir mig á röndum forðaðu þér eða fórnaðu höndum
10.
Vonin blíð 05:33
Ég flana & flæki strætin þræði vanavegi í hnút eins& í leiðslu man ekki hvar ég byrjaði eða hvernig fór hvítir sandar kókospálmar stráhattar langar marlboro campari sólsetur campari sólsetur þú & ég hönd við hönd undir bungaló mér verður öllum um & ó ég var að eignast nýjan vin ég heimsótti skrattann þar sem hann bjó ég er snillingur með svipuna en fjandinn hvað hún hjó hvítir sandar kókospálmar stráhattar langar marlboro campari sólsetur campari sólsetur við völdum okkur leið - áfram en drógumst aftur úr mér verður öllum um & ó ástin mín kallar píkuna sína Bína en hún er farin frá mér ég vona ég vona vona að ég fái bara að tóra vild mína ég er lúin á lýð lúin á því að biðja þig að fara úr vegi fyrir mér & opna dyr því ég veit að hugur þinn er læstur hún horfði suður & ég horfði vestur
11.
Er þú kemur ég sef skuggsæla hugann & það sem er var í raun alls enginn raun gættu þess að vekja mig ekki úr draumi því þar hvílir sá sem þú vilt ei verða ásjár Æru þrotinn, þrútinn, blár þögull greipar spennir; hæruskotinn, grettur, grár glóðaraugum rennir.

about

Rökrétt framhald er önnur plata Grísalappalísu

credits

released June 17, 2014

Upptökur fóru fram á Járnbraut í febrúar og mars 2014.
Auka upptökur fóru fram á Grettisgötu og Snorrabraut.
Stjórn upptöku og hljóðblöndun: Albert Finnbogason
Hljómjöfnun: April Golden í Golden Mastering, Kaliforníu

Öll tónlist eftir Grísalappalísu og allir textar eftir Baldursson, nema:
"Nóttin": tónlist eftir Gunnar Ragnarsson og Þórunni Guðjónsdóttur,
"Nýlendugata-Pálsbæjarvör-Grítta" og "Sá mig í sepgli": tónlist eftir Albert Finnbogason.
Textar við "Tík", "Flýja" og "Nóttin" eftir Baldur Baldursson og Gunnar Ragnarsson.
Uppsetningar, leiðréttingar og skemmileggingar eftir Gunnar Ragnarsson

---
Grísalappalísa:
Albert Finnbogason - Gítarar, hljóðgervlar, píanó, ásláttur, bakraddir í "Nóttin" og trommur í "Melankólía"
Baldur Baldursson - Söngur
Bergur Thomas Anderson - Bassi, bakraddir í "Nóttin" og gítar í "Melankólía"
Gunnar Ragnarsson - Söngur
Rúnar Örn Marinósson - Gítarar og bassi í "Melankólía"
Sigurður Möller Sívertsen - Trommur, ásláttur og gítarsóló í "Melankólía"
Tumi Árnason - Saxófónn

AukaLappalísur/Strengir:
Laufey Jensdóttir - Fiðla
Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir - Fiðla
Hallgrímur Jónas Jensson - Selló
Viktor Orri Árnason - Víóla

Strengja útsetningar: Bergrún Snæbjörnsdóttir

---
Plötuumslag - Tumi Árnason
Uppsetning - Ingi Kristján Sigurmarsson
Málari - Rögnvaldur Skúli Árnason
Ljósmyndari - Heimir Gestur Valdimarsson
Sjónrænn Sérfræðingur - Magnús Andersen
Stílisti - Eleni Podara

---
12 Tónar gáfu út

license

all rights reserved

tags

about

Grísalappalísa Reykjavik, Iceland

“A new voice has emerged in Icelandic rock—it is loud, angry, literate and groovy”.

Grísalappalísa is a seven-piece pop outfit from Reykjavik, Iceland. Armed with razor-sharp lyrics and block rockin’ beats, Grísalappalísa’s shows and musical output are second to none.” ... more

contact / help

Contact Grísalappalísa

Streaming and
Download help

Redeem code

Report this album or account

Grísalappalísa recommends:

If you like Grísalappalísa, you may also like: